17.2.2008 | 21:40
Mömmur...
Hver man nokkur velvalin orð sem mömmur hafa látið falla í kringum ævina... þessi linkur er klárlega einn af mínum uppáhalds :) það er eins og hún hafi bara verið í beinsamandi við múttu frá því ég var tíu ára og þangað til ... já ennþá hehe mæli hiklaust með því að hlusta á þetta:
http://www.youtube.com/watch?v=uFYcmZEOvW4
Annars er Sigurður búin að vera á haus alla helgina að koma íbúðinni í stand stendur sig eins og hetja þessi elskan en ekki hvað! Við vonandi náum að flytja inn næstu helgi... ohh draumur komast loksins aftur í okkar eigið... með okkar mublum og okkar dóti.. ekki það að við höfum ekki haft það fínt í Arnarsmáranum. Heiðdís Emma og Tryggvi fóru á kostum í gær með pabba sínum.. hann var frekar upptekin að horfa á United - Arsenal sem fór btw 4-0 fyrir okkar mönnum... eftir leikinn fer hann nú að leyta að börnunum. Finnur þau ekki nema hvað þar sem þau sitja í eldhúsinu og fyrir framan þau er plastönd og þau eru búin að mylja niður heilan kexpakka á golfið fyrir framan hana. Minn kall frekar hissa á þessu og spyr hvað þau séu eiginlega að gera. Svarið var alveg klárt þau voru að gefa öndinni að borða !! dohh bara fyndið mikið er ég fegin að ég þurfti ekki að þrífa þetta upp hehehe
Annars segi ég þetta gott í bili mæli aftur hiklaust með linkinum sem er svo mikil snilld :)
Tjá
Bloggar | Breytt 18.2.2008 kl. 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.2.2008 | 14:16
Tröllakór
Nú styttist í flutningana en við fáum íbúðina okkar afhenta í næstu viku. Þessi helgi verður crazy hjá honum Sigurði mínum en hann ætlar að parket og flísaleggja. Ohh get ekki beðið þar til allt verður klárt!!! Heiðdís Emma og Tryggvi eru líka orðin ekkert smá spennt og alveg með þetta á hreinu... þegar þau flytja fá þau stóra rúmið og í stóra rúminu er maður ekki með duddu :) hehe aðeins verið að reyna. Ætlum að vera með límmiðaverðlaunadagskrá fyrstu daganna og athuga hvort það virki ekki. Þau eru nú ekkert svo mikil duddubörn en þetta er auðvitað bara vani.
Ég er búin að segja skilið við Sporthúsið og skellti mér upp í H10 nýju líkamsræktina í Kórnum.. enda er það nú bara þannig að þegar ég labba út úr mínu húsi dett ég nánast inní ræktina þetta er svo nálægt
svo nú er enginn afsökun! Er að stefna á hálfmaraþon næsta sumar en ekki búin að vera nógu dugleg á þessu ári þar sem við erum búin að detta í soldið veikindi og tilheyrandi.... nú er þó klárlega breyting á því og stefnan sett á ca 60 km á mánuði hananú! Enda bara þrír mánuðir í tjúttferðina hjá okkur píunum en við ætlum til Búlgaríu og hafa það kósý í maí - 6 stelpur saman ekki leiðinlegt. Það er svo ekki eina planaða útlandaferðin en við systkinin ætlum að taka fjölskyldurnar með okkur til Spánar í júlí svo það er nóg að hlakka til...
Síðan ég skrifaði síðast eru Heiðdís Emma og Tryggvi næstum orðin fullorðins. Tryggvi töffari ELSKAR Bubba Morteins og hann vill helst ekki fara út úr húsi nema í gallabuxum og hvítri skyrtu en það er btw fatnaðurinn á Bubba þegar hann hélt afmælistónleikana... sem er btw uppáhalds spólann hans Tryggva! Þau syngja bæði "jörðin hún snýst um sólina" og "stál og hnífur" sem er bara fyndið! Heiðdís Emma er svakaleg mamma og hún man allt. Kann orðið nánast alla stafina og pælir mikið í því hver á hvaða staf og þekkir þá flesta ótrulega dugleg
Aldrei að vita nema ég fari að skrifa oftar... er reyndar núna á leiðinni út í söngskólann okkar svo færslan verður ekki lengri í dag!
Tjá
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2008 | 23:03
Að detta í blogggírinn aftur..
Góður dagur í dag til að byrja að blogga aftur... held það séu einmitt akkurat 103 dagar síðan ég hætti... maður drappaðist bara niður þegar borgarstjórnin féll :) nú eru breyttir tímar svo það er bara fínt að byrja á þessu bloggi aftur.. Svo eru líka svo margar góðar vinkonur í útlöndum sem þurfa klárlega á smá slúðri að halda
En í dag datt mér ekkert sniðugra í hug nema hrikalega góðir punktar um hvort þú sért að eldast eða ekki... sá mig knúna til að taka þetta test þar sem mér er sagt af mínum vinkonum að ég sé nánast orðin amma þar sem ég er svo gömul...
25 signs that you have grown up
Nice compilation again. You are grown and responsible gentleman/woman when :
1. Your houseplants are alive, and you can’t smoke any of them.
2. Having sex in a twin bed is out of the question.
3. You keep more food than beer in the fridge.
4. 6:00 AM is when you get up, not when you go to bed.
5. You hear your favorite song in an elevator.
6. You watch the Weather Channel.
7. Your friends marry and divorce instead of “hook up” and “break up”.
8. You go from 130 days of vacation time to 14.
9. Jeans and a sweater no longer qualify as “dressed up”.
10. You’re the one calling the police because those %&@# kids next door won’t turn down the stereo.
11. Older relatives feel comfortable telling sex jokes around you.
12. You don’t know what time Taco Bell closes anymore.
13. Your car insurance goes down and your car payments go up.
14. You feed your dog Science Diet instead of McDonald’s leftovers.
15. Sleeping on the couch makes your back hurt.
16. You take naps.
17. Dinner and a movie is the whole date instead of the beginning of one.
18. Eating a basket of chicken wings at 3 AM would severely upset, rather than settle, your stomach.
19. You go to the drug store for ibuprofen and antacid, not condoms and pregnancy tests.
20. A $4.00 bottle of wine is no longer “pretty good shit”.
21. You actually eat breakfast food at breakfast time.
22. “I just can’t drink the way I used to” replaces “I’m never going to drink that much again”.
23. 90% of the time you spend in front of a computer is for real work.
24. You drink at home to save money before going to a bar.
25. When you find out your friend is pregnant you congratulate them instead of asking, “Oh shit, what the hell happened?”
Ég get bara sagt það að þónokkur atriði eiga við mig
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.10.2007 | 22:08
Dramavika af verstu gerð
Tíðindamikil vika að líða undir lok þar sem meirihlutinn féll á mjög svo vafasaman hátt. Ég spyr mig hvernig getur Björn Ingi sofið vært eftir aðra eins uppákomu. Það eru fáir sem átta sig á þessari fáránlegu og hröðu atburðarrás í gær og ég er klárlega ein þeirra.
Það er greinilega ekki grín að vera í borgarstjórn.... þar sem samstarfsmenn eru stungnir í bakið þegar þeir eru ekki sammála öllu. Já einn maður hefur assgoti mikil völd! Undirferli hefur aldrei verið jafnmikið... Björn Ingi hefur klárlega verið búin að liggja í símanum allan morgunin að plotta svikin, spjallar svo við vin sinn Villa borgarstjóra og segist vera á leiðinni til hans... heyrðu síminn hringir og Dagur biður hann að hitta sig hann bara slær til og þar finnst mér sjást skýrt og greinilega í gegn hvernig maður Björn Ingi er þar sem hann er ekkert að hafa fyrir því að boða fráföll eða svara síma.
Maður spyr sig að því hvort þessi fjögurra flokka BORGARSTJÓRN sé svo völt að Björn Ingi og hans lið hafi hreinlega búist við því að einhver hinna flokkanna þriggja myndi sameinast Sjálfstæðisflokknum í meirihluta ef ekki yrði drifið í að mynda nýjan meirihluta. Svo gott er samstarfið og traustið að þetta þoldi enga bið!
Klárt mál er að þessi nýja fjögurra flokka ríkisstjórn á erfitt verkefni fyrir höndum þar sem hver höndin á eftir að vera upp á móti hvor annarri!
Jæja Sjálfstæðismenn í Reykjavík verða klárlega að spýta enn meira í lófana og ná yfir helming greiddra atkvæða í næstu borgarstjórnarkosningum þar sem erfitt reynist að vinna með öðrum flokkum.
Bloggar | Breytt 1.11.2007 kl. 13:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.10.2007 | 20:47
Ályktun frá Týr
Týr, f.u.s í Kópavogi ályktaði í gær getur nálgst ályktuninna hér:
Týr, f. u. s. í Kópavogi, fagnar því tækifæri sem sjálfstæðisflokkurinn hefur nú í nýrri ríkistjórn til að halda sjálfstæðisstefnunni á lofti í þeim málaflokkum sem ekki gáfust færi á í síðustu ríkisstjórn. Aukin afgangur ríkissjóðs er töluvert meiri en gert hafði verið ráð fyrir en þó er orsökin ekki aðhald í ríkisfjármálum þar sem útgjöld ríkis hefur verið að aukast til muna sem hlutfall af þjóðarframleiðslu.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar síðastliðið sumar segir að kerfi óbeinna skatta, svo sem vörugjalda og virðisaukaskatts, verði endurskoðað á tímabilinu. Týr fagnar þessum áætlunum og hugmyndum sem uppi eru um lækkun skatta almennt, og telur að í senn ætti að huga að einföldun skattkerfisins og taka upp flatan skatt.
Týr minnir ráðherra Sjálfstæðisflokksins á að grundvöllur sjálfstæðisstefnunnar byggir á minni ríkisumsvifnum og er því ótækt að nýlagt fjárlagafrumvarp geri ráð fyrir auknum umsvifum ríkisins í náinni framtíð.
Kópavogur. 03.10.2007
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.9.2007 | 10:50
Kallinn orðin þrítugur!
Sigurður minn átti afmæli í gær og varð þrítugur kallinn. Engin smá aldur en við vorum sammála um að hann liti ekki út fyrir að vera deginum eldri en 28.ára hehehe. Dagurinn var geggjaður hann fékk afmælispakka frá Heiðdísi Emmu og Tryggva um morguninn hrikalega flottan útivistargalla sem smellpassaði! Svo sungu þau afmælissönginn... "hann á afmæli í dag......" svo kom "hann er tveggja í dag" mjög sátt og ánægð með þetta... (sérstaklega Sigurður!) svo hló hann bara að því að þegar ég verð þrítug... þá verða börnin átta ára og eina sem ég fæ að heyra... "mamma þú ert orðin ógeðslega GÖMUL" !!! meðan hann fær bara knús, kossa og tveggja ára sönginn!
Þau töluðu víst ekki um annað á leikskólanum en afmælið hans pabba og sungu afmælissönginn ALLAN daginn!! híhí ... við keyptum svo afmælisköku og bjuggum til kórónu því eins og allir tveggja ára krakkar vita fær maður kórónu þegar maður á afmæli! Fleiri afmælispakkar opnaðir... skyrta, bindi, megas geisladiskur og svo síðast en ekki síst FLAKKARI jiha! Sátum svo öll og borðuðum köku... þrír við borðið með afmæliskórónu hehe mjög gott
Töluðum um það í gærmorgun hvað þetta er góður dagur... okkur finnst við svo einstaklega heppin. Við erum hraust, hress, eigum æðisleg börn, ástfangin og bæði farin að vinna svo við erum hætt með núðlur og brauð í öll mál eins og það var þegar við vorum í skóla!!
Fórum svo út að borða á Caruso í gærkvöldi ... æðislegt... góður félagsskapur nema nátla ég! ... æji það má aldrei tala neitt þegar maður fer út að borða... þarf alltaf að tala svo lágt jarijari Ásta mágkona og Þorsteinn frekar barasing yfir kellunni... hehe... fer að taka þorstein mér til fyrirmyndar svara engu og vera mjög leyndardómsfull!! hvað ætli ég haldi út lengi... meira þessi týpa "hey Unnur hvað segirðu gott?" æ ok fyrst þú snýrð upp á hendina á mér.... og svo kemur öll sagan ![]()
Er það ekki kostur?
Mér finnst það allavega... Þorsteinn var spurður að því hvað hann væri að borða´(á veitingastaðnum) ... hann var ekki klár á því hvort hann ætti að svara!!!!
jæja back to ritgerð tjá í bili
Afmæli ársins á laugardaginn hlakka bara til!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.8.2007 | 16:22
Góður mánudagur....
Þá er vonandi síðasta prófi innan hagfræðinnar lokið hjá mér þar til ég skelli mér í masterinn sem verður ekki á næstunni !!!
Ég er svo seinheppin stundum að það er oft frekar fyndið... við fjölskyldan erum búin að tala um það í nokkra mánuði að skella okkur í Mosfellsbæjarsundlaugina... hún er víst alveg geggjuð fyrir svona lítil kríli... jæja við létum verða af því í gær... hrikalega spennt fyrir nýju "hátækni" sundlauginni skelltum við okkur alla leiðina í Mosfellsbæ... sem er btw löng leið!.... allavega þegar við komum að gömlu lauginni (sem ég sagði Sigurði að væri búið að taka í gegn) vorum við nú frekar hissa hvað lítið af fólki væri á staðnum... svo voru klefarnir pínulitlir... næstum því mosi í sturtunni og allt frekar gamalt ... sannfærðist svo að við vorum klárlega á röngum stað þegar við komum út í sundlaug.. en þar var ENGINN (ja nema Jón Baldvin og Bryndís Schram) og engin fín rennubraut eða neitt... klárlega mikil vonbrigði fyrir mig og Sigurð en Heiðdís Emma og Tryggvi skemmtu sér auðvitað konunglega
Þegar við komum út náðum við svo þessari flottu fornbílasýningu sem var í gangi... stoppuðum stutt og fengum okkur pylsu... því ég er í átaki
þar gerðist nú eitt af kraftaverkum og ég er klár á því að ekki munu allir trúa mér... EN það var þessi grimmi ljóti geitungur sem gerði sig líklegan til að fljúga í kringum Trix, minn eina son... að ég fórnaði mér... baðaði út höndum og rak geitunginn í burtu... klárlega strax á eftir sást í ekkert nema skósólana mína þar sem ég hljóp öskrandi í burtu......... engu að síður klárlega afrek hjá jafn geitungahræddri manneskju og mér!
já gleymi að minnast á faboulous föstudagskvöldið... tjútt og trall heima hjá Þóru eftir eðalmat... það var Hollywood themes og samankomnar hinir ýmsu stórstjörnum, Madonna, Britney, Marilyn, Beyonce, konan hans Hugh Hefner og fleiri góðar... hrikalega skemmtilegt kvöld... kjóllinn hennar Clausen stendur klárlega uppúr get vonandi sett inn myndir fljótlega... appelsínugulur, flottur og 40 ára gamall!! luv it
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.8.2007 | 13:41
Unnur... stolltur Kópavogsbúi
Er að verða hrikalega stollt af því að búa í Kópavogi .... það var eiginlega ástæðan fyrir því að mig langaði að skrifa nokkur orð... hef ALLTAF litið á mig sem Garðbæing bjó þar nú í 21 ár... þar til ég flutti að heiman með Sigurði mínum... tókum eitt og hálft ár á stúdentagörðunum í Rvk og keyptum svo í Kópavogi... fannst frekar erfitt að komast ekki yfir í Garðabæ en ég er held ég svei mér þá bara að snúast... skil ekkert í þessu snobbi þarna hinum megin við hæðina!
Í fyrsta lagi byggja þeir ekkert sjálfir... eiga fínasta land fyrir lóðir en ekkert gerist... Urriðaholt var selt..þar eru lóðir seldar hæst bjóðenda af einkaaðilum (hvernig ætli það gangi) - hæsta lóðaverð í heimi er talað um. þó svo ég sé mjööög hlynnt samkeppni þá sjá það flestir að þetta lóðabras í Garðabæ er engan veginn að virka... seinir....latir og lítið sem gerist enda verðmátu þeir lóðirnar alltof hátt og uppsett verð er geggjun.
Það er kalt á toppnum hjá Gunnari Birgis og öðrum sjálfstæðismönnum í Kópavogi. Kópavogur hefur verið að sygla í gegnum þvílíkt uppvaxtartímabil með frábærri nýrri byggð, eða byggðum, uppbyggingu verslanna og greinilegt að stefna bæjarins hefur laðað að sér ýmis fyrirtæki frá nágrannasveitarfélögum og "the Big apple" sem klárlega skilar pening í kassann. Íþróttahús eru reist ekki rætt um í mörg ár og svo kemur skemma (garðabær).... vegna þessa skil ég ekki hvers vegna aðeins beinast neikvæðar fréttir úr Kópavogi?? Finnst þeir eiga hrós skilið, klapp á bakið og meiri stuðning bæjarbúa
Ég er alveg búin að skipta um lið held ég bara... ætla ala upp börnin mín í Kópavogi en hætta að púkka upp á þetta snobb lið í Garðabæ :)
Var spurð að því um daginn hvort ég væri trúuð.... ég bara "já ég er það" svarið sem ég fékk var "gott þá er örugglega betra fyrir þig að bíða eftir því plássi sem Guð gefur þér heldur en lóð í Garðabæ"
þreytan er farin að stíga mér til höfuðs... hversu lélegt máltæki er þetta? allavega orðin það þreytt að ég næ ekki að hugsa hvernig þreyta getur stigið mér til höfuðs?
stutt í próf... próf á föstudaginn þá hættir þessi klikkun... ss vinna frá 8-16 og læra frá 16-01... lítið um svefn ... mikið um stress... sem fer mér einstaklega illa ![]()
18.8.2007 | 18:55
Gosdrykkjaframleiðendur hvað eru sumir að spá?
Í skólanum síðasta vor var ég mikið að velta fyrir mér samkeppni á gosdrykkjamarkaði, en þar hafa miklar breytingar átt sér stað á stuttum tíma. Hjá mér vekur það mikla athygli hversu breytt markaðsumhverfið er og það sem þótti vinsælast og "best" fyrir innan við tíu árum hefur hrapað í markaðshlutdeild og gjörsamlega tapað stöðu sinni.
Enda er það áberandi breytingar sem hafa átt sér stað bæði hjá fyrirtækjunum sjálfum (Vífilfelli og Ölgerðinni) og einnig þjóðfélagslegar breytingar t.d. bætt heilsuvitund þjóðarinnar og annarra þjóða einnig. Sannfærðist endanlega í dag hversu miklu betur Ölgerðin stendur sig og er gjörsamlega að stinga Vífilfell af á ýmsum sviðum.
Eins og flestir vita hefur áhugi einstaklinga fyrir sykruðum kóladrykkjum lækkað mikið og síðan PepsiMax kom á markað hefur vinsælasti drykkur heims fallið mikið í áhuga. Þeir sem hugsa um heilsuna velja frekur sykurlausa drykki þegar munurinn í bragði er orðinn eins lítill og hann er er... að flestra mati allavega. Á sama tíma hefur hlutdeild vatnsdrykkja farið vaxandi og svo virðist vera sem Vífilfell átti sig engan veginn á þetta breytta mynstur og hafa gjörsamlega setið eftir... t.d. er ekki hægt að líkja vöruþróun fyrirtækjanna saman þar sem Ölgerðin hefur komið með hvern annan "big hit" drykkin t.d. krystal, krystal plús og svo þessi nýji sport. Ég verð bara að segja eins og allir þessir drykkir hafa sína sérstöðu og slá allir vatnsdrykkjum Vífilfell við.
Kannski datt mér í hug að skrifa þetta í dag því ég freistaðist til að kaupa mér Bergtopp með sítrónu án kolsýru... annan eins viðbjóð hef ég ekki smakkað ... á bragðið eins og gamalt vatn með gamalli sítrónu út í... meðan Ingi sem situr við hliðiná mér við lærdóminn keypti sér hina bragðtegundina... trönuberja held ég og hann var ennþá verri! hvað voru þeir annars að hugsa þegar þeir settu þetta á markað? Ég allavega spái ekki langlífi.
Svo virðist vera sem Vífilfell hafi haldið að þessi "bóla" þar sem allir velja holla drykki yrði skammlíf og fólk myndi snúa sér að gamla góða kókinu þegar tímabilið liði hjá... já þetta er að verða langt "tímabil" og slagorð Vífilfell ESC (egils sigrar coke) virðist ætla rætast fyrr en marga grunar...
Enda ekki nema von.. þeir leggja áherslu á vöruþróun, markaðsmál og sýnileika sem eru helstu þættir í fyrirtæki eins og þessum til að skapa markaðshlutdeild, sölu og vinsældir. Þarf nú ekki meira en að kíkja á heimasíðu fyrirtækjanna til að sannfærast...
Ég sem drakk alltaf kók og ekkert annað er ofurseld rauðum kristal plús sem mér finnst þrusugóður miðað við sódavatn! og það verður langt þar til ég skipti yfir í annað
Sambandi við bergtoppinn minn með sítrónu... þá drakk ég hann allan en þennan viðbjóð kaupi ég aldrei aftur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.8.2007 | 10:19
Landsleikurinn í gær...
getur maður ekki kallað þetta landsleik? jújú held það bara þar sem það var nú talað um að þetta væri landslið tónlistarmanna já þá var þetta næstum leikur... anyways... skemmtum okkur ekkert smá vel á tónleikunum í gær Heiðdís Emma og Tryggvi dönsuðu þvílíkt mikið... eða bíddu Heiðdís Emma var að SLAMMA haha bara alveg eins og mamma sín í "denn" á djamminu alltaf jafn eló á dansgólfinu hehe. ohh dem fattaði að ég er orðin gömul þegar Helgi Björns sagði "eru ekki allir SEXY" og 18 ára stelpur bara ööö hvað var maðurinn eiginlega að meina!! jújú þá man mín nú eftir töktunum í kallinum. Hrikalega flottur auðvitað en ekki datt mér í hug að hann ætti þessa gæru ennþá sem hann var með á öxlunum! Bara fyndið ![]()
Tölfræði II tilraun II búin .. ætla bara að hafa fá orð um það. Erfitt próf engin samanburður þar sem ég var sú eina sem mætti sýnist mér .. vona allaega að kallinn verði í góðu skapi svo ég geti nú útskrifast... spurning um að senda honum epli??
Næsta próf á föstudaginn.. þá er þetta nú (vonandi) alveg að verða búið... er á leið upp í skóla en er först yfir Lablæ (latabæ) hehe spennandi þáttur... ![]()
Lærdómsfrú Unnur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

majab
stebbifr
poppoli
agnar
agbjarn
bennih
gudjonbergmann
inam
ingabesta
jax
katrinhelga
maggaelin
oskarorn
sigurdurkari
stefaniasig
eyverjar







